Blogg
6.3.2010
Ný stjórn
Sælir félagar.
Þá er Örvar farin í sína þriðu veiðiferð og var haldin starfsmannafundur um borð áður en skipið lagði af stað á haf út. Var alveg hörkumæting og voru ýmis mál rædd, kosningu í nýja stjórn var lokið og var ný stjórn kynnt.
Formaður: Ólafur Guðmundsson
Gjaldkeri: Ástmar Sigurjónsson
Ritari: Þráinn Bessi Gunnarsson
Varamenn eru Einar Haukur Arason og Sverrir Kjartansson, býð ég nýja stjórn velkomna til starfa.
Talað var um að fá gagnagrunn um borð og er það komið í vinnslu og sömuleiðis með að fá sjónvarpsflakkara í borðsalinn.
Baráttukveðjur til ykkar allra.

3.3.2010
Fullir
Já góðan og blessaðan daginn.
Þá erum við strákarnir á skemmtiferðaskipinu Örvari Hu2 komnir í land eftir alveg brilliant túr. Var bara mjög gaman og sérstaklega á heimleiðinni með fullt skip. Það voru minniháttar vesen hjá okkur, það var ein dúndur vakt sem að það slitnaði dauði leggur og svo festi kallinn og pokinn þurfti endilega að flækjast alla leið uppí höfuðlínu, en það var bara stuð á þessu. Voru teknar slatti af myndum og á ég von á að fá þær í hús á morgun svo ég geti sett þær á netið. Verður svo haldinn aðalfundur 30 mínútum fyrir brottför í þriðja túr Þar sem verður kinnt ný stjórn og önnur mál rædd. Vona ég að flestir geti mætt.
Kærar kveðjur þangað til næst :o)

29.1.2010
Fyrsta túr ársins 2010 lokið
Góðan og blessaðan daginn kæru lesendur og icesaveskuldendur. Þá er fyrsti túr ársins 2010 lokið og var þetta bara ágætis túr, fyrir utan að við vorum ekki með neitt sjónvarpsefni og misstum af handboltanum en við hlustuðum bara á hann í útvarpinu góða. Túrin byrjaði þannig hjá okkur að ofnakerfið byrjaði að leka hjá okkur inni í vegg einhversstaðar og lak inní einn klefann og höfðu vélstjórarnir enga hugmynd um hvaðan þetta kæmi þannig að það var bara skrúfað fyrir lekann og allt í lagi með það. Nú er kosning nýrrar stjórnar byrjuð og verður haldin starsmannafundur eftir næsta túr þar sem að ný stjórn verður afhjúpuð, eru menn spenntir og menn segja að árið 2010 sé ár fyrir breytingar, er ég alveg sammála því. Frímann góði lenti í óhappi þennan túrinn, voru strákarnir að setja stroffu á belginn þegar að hann slær Frímann til og skellir honum í hlunninguna með þeim afleiðinugm að hann rifbeinsbrotnaði, þá var vika eftir af túrnum og var hann óvinnufær eftir það og settist hann að í stólnum hans stóra, ekki held ég að stóri verði ánægður með það að það sé einhver búin að rugla stólnum hans, og þegar að ég segji sá stóri þá meina ég á hæðina. Við tókum svo einn puttabrotin með okkur af Málmeynni og kom hann með okkur í land. teknar voru nokkrar myndir og ætla ég að skella þeim inn hér frljótlega, kærar kveðjur.
1.1.2010
Nýtt ár
Góðan daginn kæru lesendur.
Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla. Mikið er búið að gerast hjá okkur árið 2009 og vona ég að árið 2010 verði nú kannski örlítið betra. Fór brot af starfsmönnum Örvars á jólahlaðborð í Kántrýbæ sem að heppnaðist mjög vel, var maturinn og skemmtun afbrags góð. Hljómsveitin stóð fyrir sínu og held ég að allir hafi farið nokkuð sáttir heim, í misjöfni ástandi náttúrulega. Engar myndir voru teknar á þessari skemmtun enda hefðu kannski ekki margar átt erindi á veraldarvefinn. Brottför Örvars er svo á morgun 2.janúar 2010 klukkan 11 um morguninn. Verið er að vinna í mörgum málum sem tengjast starfsmannafélaginu og verður haldin fundur um borð í næstu tvem túrum. Baráttukveðjur til allra og vonandi verður byrjunin á þessu ári mjög góð.
kærlig hilsen.

22.12.2009
Jólaboð 26.12.09
Já sælt veri fólkið.
Ákveðið hefur verið að halda jólaboð í Kántrýbæ þann 26.12.09. Hugmyndin var að vera á efri hæð hússins vegna þess að Arnars menn eru með jólahlaðborð á sama tíma í kántrýbæ á neðri hæðinni en fékk ég svo hringingu frá stjórnarmanni Arnars og kom sú hugmynd frá þeim að vera bara saman niðri. Og við Þáðum það með þökkum, mæting verður í Kántrýbæ klukkan 19:30 í fordrykk og svo matur í framhaldi af því. Bjarni töframaður verður svo með skemmtiatriði um kvöldið og svo hörkuball með hljósmveitinni Matta og draugabönunum. Það er ágætis mæting hjá okkur Örvars mönnum en hefði alveg mátt vera betri, vonandi verður þetta bara gaman og hlakka til að hitta alla í hressu og góðu stuði. Vonandi verða menn bara ekki eins fullir og seinast þegar við vorum í kántrýbæ og passa að æla utandyra, eða ekki í langferðabílinn. Bið kærlega að heylsa og óska öllum gleðilegra jóla og gleðilegt nýtt ár. :)
Góða nótt.

Forsmekkur af starfsmannafundi
Góðan og blessaðan daginn kæru lesendur.
Það var haldin smá fundur um borð í Örvari Hu2 um daginn þar sem að 90% af fastri áhöfn var um borð og voru ýmis atriði rædd sem að ég ætla að nefna hér með.
Rætt var um að kaupa tölvu sem gagnagrunn fyrir innra netkerfið og er verið að skoða það og er það komið í vinnslu með að versla gagnagrunn.
Svo þegar að gagnagrunnurinn er komin í gang að þá er hugmyndin að kaupa sjónvarpsflakkara til þess að tengja í gagnagrunninn og hafa í borðsalnum þannig að menn geti horft á það sem í gagnagrunninum er í borðsalnum.
Hugmynd kom að setja upp sjoppu en það þarf að ræða betur og að setja upp gossjálfsala um borð og hætta að kaupa gos í gegnum kostinn. verður það einnig rætt betur á almennum starfsmannafundi í jan\feb.
Svo kom hugmynd að segja upp því sjónvarpsefni sem að við erum með og prufa að fá okkur Thor, hér er svo linkur að stöðvum og pökkum sem er hægt að sjá á Thor ( Thor ) .
Haldin verður svo aðalfundur í Janúar og svo framhald í Febrúar. verða þá reikningar lagðir á borðið og kosið verður til nýrrar stjórnar.
kærar kveðjur

24.11.2009
Nóvember
Já góðan og blessaðan daginn.
Vegna fjölda áskoranna hef ég ákveðið að blogga eilítið þó svo ekki merkilegt sé. Það er búið að vera lítið að gerast hjá okkur á Örvari uppá síðkastið. Þegar farið var af stað í september túrinn og í fyrsta hífoppi þá dó pokagilsinn, blessuð sé minning hans, og við þurftum að nota kranann allan túrinn sem var allt í lagi þó svo að hlutirinir hafi gengið örlítið hægar fyrir sig og við fórum með 2 kranavíra þann túrinn, algjört met. túrinn leið hratt og var þetta bara ágætis túr, var komin umræða að það ætti að koma ný lyfta handa okkur þannig að hún gæti haft undan okkur í úrslættinum, við vorum með eldgamla lyftu sem ég held að sé komin á þjóðminjasafnið núna ef fólk vill sjá og bindivélin kemur vonandi bráðum þó svo að ég sé ekki bjartsýnn.
Svo þegar að það átti að fara í okt túrinn og lyftan komin um borð þá virkaði þetta nú já ekki alveg eins og þeir vildu að þetta virkaði þó svo að þetta virkaði ekkert smá vel í tölvunni
. Og það kom í ljós að þetta var eitthvað bilað og við vorum sendir heim í 14 tíma eða svo til mikillar ánægju þeirra sem komu frá öðrum stöðum en Króknum. En við komumst loksins út 16 tímum síðar eða svo og var farið í að splæsa uppá því við fengum nýja togvíra og púsla saman öðru trollinu en ekki var pokagislinn komin í lag ekki að maður hafi verið eitthvað bjartsýnn á það. Svo byrjuðum við að fiska og voru nú menn spenntir á að vita hvernig nýja lyftan virkaði nú og við fyrsta úrslátt að þá gerðist ekkert, mikil gleði eða þannig. Vélstjórarnir komu og komu þessu drasli í gang og það fór svona einn og einn kassi niður í einu og svo fór þetta að virka betur en við vorum ennþá fljótari en lyftan og kassarnir voru fljótir að safnast upp við lyftu opið þannig að vélstjórarnir löguðu þetta með því að biðja okkur að minnka afköstin í úrslættinum, var hunsað þau fyrirmæli og var settur bara maður við lyftuopið til að hjálpa kössunum niður. En í lok túrs var þetta nú komið í þokkalegt lag, vona bara að Fisk seafood eigi ennþá kvittunina á þessar lyftu. nei nei smá grín. túrinn var ágætur og ekkert um rifrildi. en þangað til næst, kærar kveðjur.
Vegna fjölda áskoranna hef ég ákveðið að blogga eilítið þó svo ekki merkilegt sé. Það er búið að vera lítið að gerast hjá okkur á Örvari uppá síðkastið. Þegar farið var af stað í september túrinn og í fyrsta hífoppi þá dó pokagilsinn, blessuð sé minning hans, og við þurftum að nota kranann allan túrinn sem var allt í lagi þó svo að hlutirinir hafi gengið örlítið hægar fyrir sig og við fórum með 2 kranavíra þann túrinn, algjört met. túrinn leið hratt og var þetta bara ágætis túr, var komin umræða að það ætti að koma ný lyfta handa okkur þannig að hún gæti haft undan okkur í úrslættinum, við vorum með eldgamla lyftu sem ég held að sé komin á þjóðminjasafnið núna ef fólk vill sjá og bindivélin kemur vonandi bráðum þó svo að ég sé ekki bjartsýnn.
Svo þegar að það átti að fara í okt túrinn og lyftan komin um borð þá virkaði þetta nú já ekki alveg eins og þeir vildu að þetta virkaði þó svo að þetta virkaði ekkert smá vel í tölvunni
24.7.2009
Sumarið er tíminn
Já góðan og blessaðan daginn.
Ég hálfpartinn skammast mín fyrir að þykjast vera einhver vefstjóri. Maður kemur í land og það er bara brjálað að gera hjá manni, það kannast örugglega flestir sjómenn við það. En já nóg um það. Seinustu túrar hafa verið alveg ágætir hjá okkur, ekkert alvarleg vesen ef að það má þá kalla vesen yfirhöfuð. Ég ætla bara að skella inn nokkrum myndum og segja það bara ágætt í bili. kærlig hilsen.

13.5.2009
Ótitlað
Smá fréttir.
Það er nú óhætt að segja að við á Örvari erum ekki þeir heppnustu í flotanum, þegar að strákarnir komu í land um daginn og verið var að vinna örlítið í skipinu, þá kviknar í millidekkinu hjá okkur en ekkert alvarlegt þó, það kom upp eldur í tengiboxi fyrir ofan hausarann þar sem enginn hafði verið að vinna, sem betur fer voru röskir menn að vinna um borð og náðu þeir að slökkva eldinn, svo þegar að við erum lagðir af stað út á miðinn og í fyrsta kasti þá bilar bb spilið og við bara í leið í land í Hafnafirði, við vorum komnir í land á laugardeginum 9.maí og erum svo að fara suður í dag 13.maí og þá á þetta allt að vera tilbúið, ég setti inn 3 myndir af áverkum brunans...

5.5.2009
Sumarið gengið í garð
Já góðan daginn kæra fólk sem að hefur ekkert betra að gera en að skoða blogg hjá ýmsum skipum, og eruð þið líklega þá sjómenn. Örvar kom í land um mánudagsmorgun eftir fínan túr. En í byrjun túrs hjá þeim þá fór Ásrafallinn og voru þeir með ljósavélarnar í gangi allan túrinn þannig að þetta hafðist alveg hjá þeim. Hef ég ekkert frétt hvort að það voru teknar einhverjar myndir úr túrnum en ef svo er þá koma þær örugglega ekki fyrr en við komum í land næst. Þegar við komum í land næst er bara sjómannadagurinn genginn í garð, svakalega er þetta fljótt að líða...
En já segjum þetta gott í bili, baráttukveðjur.

2.4.2009
Mars í brjáluðu veðri
Já góðan og blessaðan daginn.
Þá er maður komin í land eftir langan og erfiðan túr
svona eða þannig. Þetta var fínn túr hjá okkur svona miðað við veður og veiði. Það var nú rólegt hjá okkur mest allan túrinn en það vantaði nú samt ekki góða skapið hjá okkur, það vöknuðu flest allir mjög hressir og sérstaklega hann Jón Heiðar og þó svo að það hafi verið hellt niður úr kaffibollanum hans þá var hann ekkert að stressa sig yfir þvi, heldur bara bauð góðan daginn og brosti framan í heiminn. Við vorum með nýja hlera sem að virkuðu nú alveg ágætlega held ég, en það er nú ennþá verið að þróa sig eitthvað áfram í þeim eins og gerist nú oftast þegar eitthvað nýtt kemur um borð. Erum við byrjaðir að leggja netið um borð hjá okkur, eða svona innra net má kannski kalla það, við erum ekkert með neina internet kúlu en erum bara að leggja innbirðis fyrir okkur tölvunördana. þá losnar mannskapurinn kannski við okkur úr borðsalnum með tölvurnar okkar. Það gerðust nú engin stórundur hjá okkur neitt, en langt síðan að maður hefur lent í svona brjáluðu veðri, við fengum að landa fyrir sunnan í staðin fyrir að þurfa að berjast norður fyrir land, er maður mjög þakklátur fyrir það. hafiði það svo allra best og baráttukveðjur til allra sem að eru að gera eitthvað.
Þá er maður komin í land eftir langan og erfiðan túr
Mannlega hliðin
Jæja, þá er ég farin að kunna aðeins á þetta
Arnar Bragi Ómarsson

Jón Heiðar

Einar Haukur Arason

Björgvin

Hjalti Indriðason

Hörður

Þráinn Bessi Gunnarsson
Flettingar í dag: 8
Gestir í dag: 5
Flettingar í gær: 47
Gestir í gær: 20
Samtals flettingar: 33176
Samtals gestir: 13736
Tölur uppfærðar: 22.3.2010 08:55:55